Tölvuvandamál

Ef tölvan er að vera óþekk þá getum við greint hvað vandamálið er og hresst upp á hana.

Hjálp með gögn

Fjölbreitt aðstoð með gögn og gangaútfyllingu hvort sem er á pappír eða netinu, ásamt því að finna upplýsingar.

Kennsla

VIð getum kennt notkun á tölvum, farsímum, Internetinu, sjónvarpinu og margskonar öðrum tækjum og tækni.

Viðgerðir

Við sinnum smáviðgerðum innan heimilisins, allt frá því að festa lausar skáphurðir yfir í að skipta um ljósaperur á óþægilegum stöðum.

Við erum Smáverkin og við reddum þessu!

Smáverkin er íslensk þjónusta sem kemur heim til þín og hjálpar þér að leysa öll smáverk sem þú hefur ekki tíma, þekkingu eða tæki og tól til að sinna. Við getum gert við allt frá tölvunni þinni, skipt um ljósaperur, fest lausar skáphurðar, kennt þér á tölvuna og önnur tæki, og meira að segja aðstoðað við að finna gögn og fylla út umsóknir.

Hvað sem það er sem er að gera þér lífið leitt, hvort sem það er hurð sem brakar eða nýtt sjónvarp sem þarf að læra á, þá erum við til staðar til að létta þér lífið. Við erum þinn trausti aðstoðarmaður fyrir öll smáverk heimilisins.

Við tökum að okkur flest allt minniháttar en hikum ekki við að mæla með og vísa á trausta iðnaðarmenn þegar vandamálin eru ekki smáverk og þarfnast fagmanna í sinni grein.